Skip to product information
1 of 16

Vango

Savannah Air 400 uppblásið tjald

Savannah Air 400 uppblásið tjald

Venjulegt verð 0 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 0 kr
Tilboð! Væntanlegt
VSK innifalinn

Myrkvuð svefnherbergi, góð vatnsheldni og gólfteppi fylgir með

Vango tjöld hafa lengi verið vinsæl meðal Íslendinga og það verður ekkert öðruvísi sumarið 2025!

  • Myrkvuð "Midnight" svefnherbergi
  • 4000mm vatnsheldni
  • Mjög auðvelt að tjalda

Tvö myrkvuð og rúmgóð Midnight svefnherbergi sem draga úr birtu og bæta svefn. Svefnherbergin eru sínhvor 140 x 210 cm með skilrúmi sem hægt er að gera að einu.

Þú getur verið áhyggjulaus í Savannah Air 400, tjaldið er áreiðanlegt og er með 4000mm vatnsheldni með límdum saumum og er því tilbúið í íslenskt veður. Dynamic weave 100 efnið í tjaldinu er sterkt og hannað til að standast krefjandi aðstæður.

Það er hefur aldrei verið einfaldara að tjalda eins og nú. Þú reisir tjaldið á 10 mínútum og getur þá sett í það borð, stóla, dýnur, svefnpoka, töskur og fl.

Einfalt er að lofta um tjaldið með loftunaropum og báðar hurðar inn í aðalrými eru með flugnanetum sem leyfir lofti að flæða í gegn en heldur flugum frá.

Auðvelt er að koma rafmagnssnúrum snyrtilega að frá tjaldsvæði í gegnum litlar renndar lúgur við botn tjaldsins.

Pumpa, gólftepppi og stór taska fylgir með.

 

Tæknileg atriði:

  • Fjöldi: 4 manna
  • Súlur: Uppblásnar loftsúlur
  • Þyngd: 24.4kg
  • Lengd: 600.0cm
  • Hæð: 205.0cm
  • Breidd: 300.0cm
  • Pökkuð stærð: L80.0 x H45.0 x B45.0cm
  • Vatnsheldni: 4000mm
  • Efni: Sentinel Fabric
  • Stór taska og pumpa
Skoða lýsingu