Skip to product information
1 of 22

Vango

Sherwood Air 600XL uppblásið tjald

Sherwood Air 600XL uppblásið tjald

Venjulegt verð 0 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 0 kr
Tilboð! Væntanlegt
VSK innifalinn

Ennþá meiri vatnsheldni, ennþá meira pláss, myrkvuð svefnherbergi og enn auðveldara að tjalda

Vango tjöld hafa lengi verið vinsæl meðal Íslendinga og nú er eitt flottasta uppblásna tjaldið á Íslenskum markaði mætt! Sherwood Air 600XL er úr Excel línunni sem er það flottasta sem kemur frá Vango.

  • Myrkvuð "Midnight" svefnherbergi
  • 5000mm vatnsheldni - vatnsheldnasta tjaldið sem við bjóðum upp á
  • Mjög auðvelt að tjalda - pumpar í það á einum stað
  • 6 manna tjald
  • Mikið pláss í alrými
  • Enn sterkara efni

Þrjú myrkvuð og rúmgóð Midnight svefnherbergi sem draga úr birtu og bæta svefn. Svefnherbergin eru 140 x 210 cm hvert með skilrúmi sem hægt er að gera að einu.

Sherwood Air 600XL ver þig og þína fyrir veðrum og vindum því það er með 5000mm vatnsheldni með límdum saumum og er því gríðarlega vel búið tjald fyrir íslenskt veðurfar. Sentinel Excel efnið í tjaldinu er 150D og er því mjög sterkt og hannað til að vera endingargottt og standast krefjandi aðstæður.

Single Inflation point - Pumpar á einum stað til að reisa það! - Það er hefur aldrei verið einfaldara að tjalda eins og nú. Þú reisir tjaldið á 12 mínútum og getur þá sett í það borð, stóla, dýnur, svefnpoka, töskur og fl.

Einfalt er að lofta um tjaldið með loftunaropum og báðar hurðar inn í aðalrými eru með flugnanetum sem leyfir lofti að flæða í gegn en heldur flugum frá.

Auðvelt er að koma rafmagnssnúrum snyrtilega að frá tjaldsvæði í gegnum litlar renndar lúgur við botn tjaldsins.

Pumpa og stór taska fylgir með.

 

Tæknileg atriði:

  • Fjöldi: 6 manna
  • Súlur: Uppblásnar loftsúlur
  • Þyngd: 45.6 kg
  • Lengd: 700.0cm
  • Hæð: 220.0cm
  • Breidd: 440.0cm
  • Pökkuð stærð: L82.0 x H42.0 x B53.0cm
  • Vatnsheldni: 5000mm
  • Efni: Sentinel Fabric
  • Stór taska og pumpa
Skoða lýsingu